Hádegi - Bröns
Hádegisverðarhlaðborð
Kíktu við á virkum dögum og njóttu girnilegs hádegisverðarhlaðborðs í notalegu umhverfi. Við hlökkum til að taka á móti ykkur á Lauf!
Í boði: Mánudaga - föstudaga, frá kl. 11:30 - 14:00
Verð: 5.900kr fyrir fullorðna | 2.950 kr. fyrir börn (6–12 ára) | Frítt fyrir börn yngri en 6 ára.
Matseðill: Súpa dagsins og nýbakað brauð með pesto og heimalöguðu smyrstri, ferskt grænt salat, ofnbakað rótargrænmeti og árstíðabundnir ávextir, grænmetisréttur dagsins, kjöt- eða fiskréttur og svo velútbúið salat dagsins. Síðast en ekki síst er glæsilegt úrval af eftirréttum sem gleðja bragðlaukana sem og augað!
Fæðuóþol eða ofnæmi? Starfsfólk okkar veitir þér af ánægju allar upplýsingar um innihald réttanna.
Brönshlaðborð
Njóttu ljúffengs helgarbröns í hlýlegu og notalegu umhverfi. Við hlökkum til að taka á móti ykkur á Lauf!
Á laugardögum, sunnudögum og almennum frídögum kl. 11:30 – 14:00.
Verð: 6.900 kr. fyrir fullorðna | 3.450 kr. fyrir börn (6–12 ára) | Frítt fyrir börn yngri en 6 ára.
Matseðill: Heimagerð súpa borin fram með nýbökuðu súrdeigsbrauði, pesto og okkar eigin hummus, klassísk Eggs Benedict með fullkomlega elduðum eggjum og stökku beikoni, árstíðabundið úrval af köldum forréttum og ferskum grænmetisréttum, kjöt- og veganréttir bornir fram með tilheyrandi meðlæti, freistandi úrval af bakkelsi og ljúffengum sætindum, kaffi og safar innifaldir
Fæðuóþol eða ofnæmi? Starfsfólk okkar veitir þér af ánægju allar upplýsingar um innihald réttanna.